Já steingrímur er búin að vera alþingis maður í 28 ár ...

ER EKKI KOMINN TÍMI TIL AÐ DRÍFA SIG EITTHVAÐ ANNAÐ...
æj nei það þarf að safan upp ráðherra lífeyri áður en sets er í helgan stein.

Ég hef aldrei orðið fyrir eins miklum vonbrigðum eins og þegar þessi stjórn tók við völdum með sínum leynileikjum og svikum.

Ég sagði nei við ICESAVE og Ég mun segja NEI við ICESAVE

og nú Hef ég bætt við ..NEI Þetta alþingi hefur ekki mitt umboð lengur ..enginn af þeim burt með allt þetta pakk..


mbl.is Atkvæðagreiðslan verði sem fyrst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég sé ekki hvernig við getum mögulega sloppið betur frá þessu. Það er og hefur aldrei verið um það deilt að fyrirfram bar okkur sennilega ekki skylda til að borga.

Það sem eftir stendur er svo það að um leið og við ábyrgðumst innistæður að fullu á Íslandi þá erum við nánast örugglega búin að skuldbinda okkur til að ábyrgjast í topp allar aðrar innistæður og að neyðarlögin gildi jafnt um íslenska bankareikninga á Íslandi sem og annarsstaðar sem fellur undir okkur (ekki 100% örugglega af því að ekki hefur reynt á þetta ákvæði í jafn stóru máli áður).

Við getum semsagt lent í því að borga upphæð sem gæti verið allt að 5-7x hærri upphæð en um var samið. Þetta ákvæði var sett inn í stofnsáttmála ESB til að varna bæði gegn rasisma og misrétti, og þetta er ein grundvallar regla Evrópusambandsins. Að mörgu leyti er ég sammála þessu ákvæði en það var ríkisstjórn D og Framsóknar sem ákvað að setja ekki nándar nærri (og í raun akkúrat í hina áttina farið) jafn strangar reglur og við gátum þegar frjálst fjármagnsflæði var leyft.

Spurningin er: þegar að því kemur sem eru um 70% líkur á að gerist, að við verðum dæmd (og biðjum til guðs að dómurinn gangi út frá Icesave samningunum og ekki þrengstu túlkun jafnréttisákvæðis ESB), mun þjóðin snúast gegn Davíð, Margréti Frímanns, Halldóri Ásgríms og Óla, eða munum við halda áfram að gráta yfir núverandi stjórn sem situr uppi með skítinn.

Vil svo taka fram að ég er eindreginn hægri maður en með mikil vonbrigði með allt það sem frá D hefur komið þangað til Bjarni Ben tók sig saman í andlitinu.

b (IP-tala skráð) 20.2.2011 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband