Er ekki ólöglegt að flytja lögheimili bara svona af því bara

stendur til að maðurionn flytji hingað norður eða mun hann bara hafa hér falsað lögheimili.

ég bara spyr


mbl.is Flytur í kjördæmið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Góð spurning Hjörleifur. Og ég er hoppandi súr yfir þessu !! Þetta er ein af góðum ástæðum þess að landið þarf að verða eitt kjördæmi, þá hættir það að gerast að þingmenn misnoti kerfið, sem þeir mega óáreitt og fyrir framan nefið á allri  þjóðinni...vantar alveg að setja klögu-hnapp á Alþingi.is, eins og er t.d. á vmst.is, svei mér þá ;))

Svo var ég að hugsa...þessir þingmenn sem svindla svona..hvað ef þeir eiga börn í leikskólum og grunnskólum í Reykjavík...fá þeir þá þjónustu án þess að greiða svo mikið sem 1 krónu í útsvar til Reykjavíkur eða nágrannasveitafélags á höfuðborgarsvæðinu, þar sem þeir í alvörunni eiga heima ????

Ég vil virkilega vona að þetta rugla verði bannað með lögum og þó fyrr hefði verið !! Það er allt annað ef menn hafa td. sannanlega átt heima úti á landi, t.d. minnst 1 ár fyrir fyrstu kosningar inná þing, en annars að banna þetta rugl og misnotkun. Svei honum ef hann ætlar að þiggja fátækrastyrk frá okkur / ríkinu, svei honum bara !!! 

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 1.11.2012 kl. 20:39

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Þeir eru nú býsna margir þingmennirnir sem eiga tvö heimili.  RSK eitt veit hvar þeir greiða skattinn.

En hver segir að Sigmundur Davíð flytji norður - Egilsstaðir eru jú fyrir austan...

Kolbrún Hilmars, 1.11.2012 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband